Herbergin
Salthús Gistiheimili býður upp á fjórtán, vel útbúin herbergi. Hvert herbergi býður upp á baðherbergi með sturtu, salerni og vaski. Átta herbergi sem snúa í suður bjóða útsýni yfir Húnaflóa, yfir höfnina og áleiðis að miðbænum á Skagaströnd. Sex herbergi sem snúa í norður bjóða útsýni yfir hafið, yfir Spákonufellshöfða og í átt til fjallanna á Skaganum. Það er einnig sameiginleg eldhúsaðstaða á hverri hæð, með sjö herbergjum á hverri hæð þessa tveggja hæða húss, sem var tekið til gagngerra endurbóta árið 2017.
Tegundir herbergja
- Fjögur fjölskylduherbergi (4 svefnpláss í hverju, hjónarúm og svefnsófi) með sjávarsýn og útgangi, á jarðhæð.
- Fjögur hjónaherbergi (2 svefnpláss í hjónarúmi í hverju) með sjávarsýn, á efri hæð.
- Þrjú hjónaherbergi (2 svefnpláss í hjónarúmi í hverju) með fjallasýn, á efri hæð.
- Eitt tveggja manna herbergi (með eins manns rúmum) með útgangi, á jarðhæð.
- Tvö lítil tveggja manna herbergi (með eins manns rúmum) með útgangi og aðgengi fyrir hjólastóla, á jarðhæð.
Fjölskylduherbergi – 4 manna
Fjögur fjölskylduherbergi eru í gistiheimilinu, með útsýni yfir Húnaflóa á jarðhæð. Fjórir geta gist í hverju fjölskylduherbergi. Í hverju herbergi er „queen size“ rúm, svefnsófi, og tveir stólar. Svaladyr eru á hverju herbergi út í garð. Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um fjölskylduherbergi.
Hjónaherbergi með sjávarsýn
Fjögur hjónaherbergi með útsýni út á Húnaflóa eru í gistiheimilinu, á efri hæð. Í hverju herbergi er „queen size“ rúm, einn stóll og skrifpúlt. Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um hjónaherbergi með sjávarsýn.
Hjónaherbergi með fjallasýn
Þrjú hjónaherbergi með útsýni yfir Spákonuhöfða og til fjalla eru í gistiheimilinu, á efri hæð. Í hverju herbergi er „queen size“ rúm, einn stóll og skrifpúlt. Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar og myndir af hjónaherbergi með fjallasýn.
Tveggja manna herbergi
Þetta herbergi, sem snýr í norður, er með tvö reinbreið úm, einn stól og skrifpúlt. Dyr eru út á bílaplan. Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um tveggja manna herbergi.
Tveggja manna herbergi – aðgengi fyrir hjólastóla
Tvö minni herbergi á jarðhæð eru með tvö einbreið rúm, einn stól og skrifpúlt. Herbergið og baðherbergi eru aðgengileg fyrir hjólastóla. Herbergin snúa í norður og eru dyr út á bílaplan. Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um tveggja manna herbergi með aðgengi fyrir hjólastóla.
Myndir frá sameiginlegu eldhúsi og umhverfi
Eldhúsið á efri hæð.
Eldhúsið á neðri hæð.
Almenningssundlaugin, í 200 metra fjarlægð frá gistiheimilinu.
Útsýni yfir svæðið norðaustan frá gistiheimilinu.
Sjórinn aftan við gistiheimilið.